Ég ákvað að nota þýðingu á Charm Me, heillaðu mig.
Challenge #24 at DIGI DOODLE SHOP'S BEST.
Þessi áskorun varð svolítið öðruvísi fyrir mér en aðrar á undan og endaði sem bók en ekki kort. Það sem hafði þessi áhrif voru stimplarnir sem ég vann með, þeir skópu söguna.
This challenge turned out a bit different for me than the others before and ended in a book instead of a card. The reason for this development are the stamps I used, they created the story.
The cardstock is from Bazzill and most of the pattern paper is from Basic Grey (the eerie collection ). The stamps are colored with Tria Markers pens. I used punches and die cut forms from Martha Stewart, Quic Kutz and many others . The rest is from my stuff.
Textinn á íslensku :
Einu sinni var pínu lítil mjallhvít galdramús. Hún átti heima langt inni í dimmum skógi. Bestu vinir hennar voru leðurblökur, en hana langaði til að eignast fleiri vini. Enn lengra inni í skóginum bjuggu 7 dvergar sem unnu í námunum sínum allan liðlangan daginn og mjallhvítu litlu galdramúsina langaði að kynnast þeim. Hún ákvað því að bjóða þeim í veislu. Framan af gekk veislan mjög vel og mjallhvítu galdramúsinni og dvergunum 7 kom ágætlega saman. Svo kom að hana langaði að sýna sig svolítið, henni fannst svo mikið til dverganna koma að hún vildi sýna þeim að hún kynni nú sitthvað fyrir sér og ákvað að sýna þeim nokkra galdra. Í byrjun var þetta ósköp lítið og saklaust, hún breytti blómum í steina og öfugt svo fór hún að ímynda sér að dvergunum finndist þetta ósköp lítið spennandi. Það var þá sem mjallhvíta litla galdramúsin ákvað að sýna sig fyrir alvöru, nýju vinir hennar skyldu sko ekki halda að hún gæti ekki gert neitt merkilegt og hún breytti öllum dvergunum 7 í grasker á einu bretti púffs og þarna voru 7 grasker/dvergker ! Þeir hlutu nú að vera hrifnir af þessu hugsaði litla galdramúsin hreikin af sjálfri sér. En það var akkúrat þarna sem seig á ógæfuhliðina, það er að segja þegar hún ætlaði að breyta þeim aftur í dvergana 7 þá kunni hún það ekki, hún hafði ekki hugsað út í það þegar hún ákvað að gera sig merkilega í augum dverganna. Það er ekkert verið að vinna í námunum núna og mjallhvíta litla galdramúsin er með 7 “dvergker” heima hjá sér og hún keppist við að lesa allar galdrabækur sem hún kemst yfir í von um að finna út hvernig eigi að breyta 7 trénuðum graskerjum í 7 dverga. Endir.
Oh WOW WOW WOW Jona !!! The most amazing project I think I have seen you create (apart from your clocks) !!! simply STUNNING !!!
ReplyDeleteÞetta er snilld!! :)
ReplyDeleteVá!! Þetta er geðveikt flott!
ReplyDeleteSo very pretty!!! My compliments. So much work...
ReplyDeleteGreetings, Katja
Hi Jona,
ReplyDeleteI just had to show Mom this amazing project you made this week, and we both just giggled as we read along in the story. How creative this was for you to do, and so beautifully colored and put together. Just amazing!!!
Hugs
Judy
WOW Jona, this is briliant, I've never seen a card like it before, there's so much to look at too.
ReplyDeletexx
Jona, one word... WOW!! This card is amazing and brilliant! The detials, the story, wow, wow, wow!! Great job!
ReplyDeleteWOW this is superb Jona so much detail to intrigue the eye and I love your creativity in presenting the story. Hugs Pascale
ReplyDeleteFlott bók mamma mín :)
ReplyDeleteOH MY DEAR.....THIS IS TOTALLY FUNTASTIC AND SOOO CREATIVE idea....you are really doing out of your self you DID A FAB JOB my dear...OOOOH WOOOW CARD!!!!hugs, Monika (not number one commentator :) )
ReplyDeleteGlæsileg sköpun hjá Jóna.
ReplyDeletekv Sigrún Jónsdóttir
Algjörlga geðveikt hjá þér! þetta minnir mig á að einu sinni vorum við með story book swap í stimplaklúbbnum mínum. Ein útbjó 7 bækur / 7 mismunandi sögur) og svo gengu þær á milli. þe. hver bjó til síðu í bókina og réði þal söguþræðinum, svo tók næsta við osfrv. Það urðu til margar geggjaðar sögur þarna :D
ReplyDeleteOg aftur.. .þetta er alveg trubbl flott hjá þér!
Jona, this is perfection!!! I love anything Halloween but this is absolutely stunning!!!
ReplyDeleteHugs, Karen
I see now why the time got away from you! This was quite the amazing project!!! I can not think of the words to describe how wonderful!!!
ReplyDeleteKym
VÁ!! Þvílík snilld!! Þegar hugmyndaflugið þitt fær lausan tauminn er útkoman ótrúleg :o)
ReplyDeleteWowzers Jona! What an amazing creation! You are so very talented!
ReplyDeleteHugs
Amber
wow...sooooo Cool Jona. amazing card....I love the story on this card.....really good job...
ReplyDeletehug
susan quilling